Þú ert hér : Forsíða :: Meðhöndlun :: Umbúðir

600 kg sekkir
500 kg áburðarpokarÁburðurinn er seldur í 600 kg stórsekkjum.  Sekkirnir eru gerðir úr tveimur lögum. Innra lagið eru úr plasti og ver áburðinn fyrir raka en ytra lagið gefur umbúðunum styrk. Botn sekkjanna er tvöfaldur sem auðveldar að tæma sekk að hluta með því að stinga spjaldi milli botnlaganna þegar hæfilegt magn hefur runnið úr honum.



40 kg pokar
Margar tegundir eru í boði í 40 kg pokum.  M.a. NPK 21-4-10, NPK 12-4-18 og OPTI-VEKST 6-5-20. Áburður í 40 kg pokum er nú pakkaðir í plast. 

40 kg áburðarpokar 

Á öllum áburðarsekkjum er stimplað númer sem tengir innihaldið við framleiðsluupplýsingar í verksmiðjunni. Ef eitthvað er talið athugavert við áburðinn er mikilvægt að tilkynna það strax til sölufulltrúa eða skrifstofu og láta þá fylgja með upplýsingar um hvaða tegund er að ræða og þetta númer sem gert er úr þrem bókstöfum og sex tölustöfum.




Sláturfélag Suðurlands svf. (www.ss.is ) l Fosshálsi 1, 110 Reykjavík s:575 6000 l yara@yara.is