Þú ert hér : Forsíða :: Meðhöndlun :: Vörumeðhöndlun

Yara leggur mikla áherslu á að þróa aðföng til gæðaframleiðslu og þar með hjálpa til að tryggja bóndanum sem besta rekstrarafkomu. Gæði áburðarins hafa áhrif á magn og gæði uppskerunnar. Það er því mjög mikilvægt að varðveita gæðin alla leiðina frá verksmiðju og út á tún og akra.


Skemmdir á umbúðum áburðar hafa í för með sér ónýtan áburð, rýrnun, aukavinnu og kvartanir frá viðskiptavinum. Þetta leiðir til aukins kostnaðar, kostnaðar sem í mörgum tilfellum má komast hjá ef áburðurinn er meðhöndlaður af varúð og á réttan hátt. Stórsekki má ekki setja harkalega niður eða ýta til. Sekkir


Verið á verði gagnvart óhreinu undirlagi – plön og gólf verða að vera án hvassra brúna eða hluta. Sópið möl og ryð af plönum áður en þið setjið áburð á þau. Lítið gat getur valdið miklum skaða.


Stórsekkjum á að lyfta með heppilegum verkfærum, án skarpra brúna sem geta skemmt hankana. Óvarinn gaffallyftari er ekki hentugur. Lyftiarmurinn/-krókurinn þarf að vera sívalur og krækjast undir vafninginn á hankanum. Sé sekknum lyft utan vafningsins getur hann rifnað. Lyftiátakið á að vera jafnt og án snöggra rykkja.


Áburð verður að geyma á þurrum stað, helst inni. Sé hann geymdur úti er mikilvægt að setja hann á bretti á traustu undirlagi þar sem ekki er hætta á ágangi vatns. Staðurinn þarf að vera skjólgóður og skuggsæll. Þetta gildir sérstaklega um HYDRO-KASTM (kalkammonsaltpétur) sem ekki þolir sólarljós eða hita


Athugið alltaf vöru sem kemur í ykkar hendur. Flutningsaðilinn er alltaf ábyrgur fyrir að rétt magn af áburði komist óskemmt til skila. Setjið skemmda vöru til hliðar og gerið strax ráðstafanir til úrbóta.

Næsta síða


Sláturfélag Suðurlands svf. (www.ss.is ) l Fosshálsi 1, 110 Reykjavík s:575 6000 l yara@yara.is