Sláturfélag Suðurlands svf. er samvinnufélag, í eigu búvöruframleiðenda á félagssvæði sínu og almennra hluthafa. Sláturfélagið var stofnað árið 1907.
Félagið starfar á þremur sviðum, slátrun, kjötiðnaði og innflutningi.
Sláturfélagið er með höfuðstöðvar að Fosshálsi 1, Reykjavík. Að Fosshálsi eru auk skrifstofu, markaðs- og söludeildir ásamt dreifingu á öllum framleiðsluvörum félagsins og innflutningi. Á Hvolsvelli er meginhluti kjötiðnaðar staðsettur ásamt frystihúsi. Sláturhús rekur félagið á Selfossi ásamt úrbeiningu á kjöti og pökkunarstöð.
Sláturfélagið hóf samstarf við Yara áður Hydro á árinu 1999 um innflutning á áburði og sér nú um sölu og dreifingu áburðar á landsvísu. Það er stefna Sláturfélagsins að bjóða bændum hágæða áburð á hagstæðu verði sem stuðlar að lækkun framleiðsukostnaðar og hreinleika afurða. Yara leggur áherslu á að vinna með bændum við að þróa áburð sem uppfyllir ströngustu kröfur um um gæði og umhverfisáhrif. Sláturfélagið er leiðandi í sölu á einkorna áburði.
Áhersla er lögð á að bjóða áburð sem hentar við allar algengar aðstæður hérlendis, fyrir tún, grænfóður og garðrækt auk sérhæfðra tegunda. Áburðurinn er framleiddur að mestu í Glomfjord í Norður-Noregi og fluttur þaðan með skipum beint á hafnir í öllum helstu landbúnaðarhéruðum landsins sem er ein af forsendum þess að hægt er að bjóða þennan gæðaáburð á hagstæðum kjörum.
Sala áburðarins er víðast í höndum heimamanna í hverju héraði en öllum er jafnframt velkomið að snúa sér til skrifstofu SS í Reykjavík.