Eingildur köfnunarefnisáburður, svokallaður kalkammonsaltpétur. Hentar á tún með ríflegri búfjáráburðargjöf og sem ábót, t.d. á milli slátta. Inniheldur einnig kalk sem vegur upp á móti sýrandi áhrifum köfnunarefnisins.
Þessi áburðartegund er ætluð túnum og grænfóðurökrum sem fá nægan búfjáráburð til þess að uppfylla þarfir fyrir fosfór og kalí en þurfa á brennisteini að halda. OPTI-NS™ 27-0-0 (4S) inniheldur líka talsvert kalk (6% Ca) sem mörg tún eru í verulegri þörf fyrir.
Eingildur köfnunarefnisáburður þar sem köfnunarefnið er nær eingöngu á formi nítrats, sem er plöntum aðgengilegt form og hefur ekki sýrandi áhrif á jarðveg. Þegar jarðvegur er kaldur er nítrat mjög mikilvægt því vitað er að þá gengur breyting ammoníums yfir í nítrat, þ.e. er á „ætilegt“ form fyrir plöntur, mjög hægt. Kalksaltpétur getur því hentað sérstaklega vel til að hjálpa túnum af stað að vori og einnig þegar gefa þarf köfnunarefnisábót, t.d. á milli slátta. Hann inniheldur kalk (18,8%) og hækkar því sýrustig (pH) jarðvegs. Þannig skilar árleg 50 kg köfnunarefnisgjöf með kalksaltpétri álíka miklu kalki á hektara og ef notað er tonn af áburðarkalki (með 5% N og 30% Ca) fimmta hvert ár.
Kalksaltpétur með 0,3% bórinnihaldi hefur alla kosti venjulegs kalksaltpéturs og er einkum ætlaður fyrir matjurtir sem þurfa á miklum bór að halda en gæti einnig hentað á fóðurkál í ákveðnum tilfellum. Nitrabor er í boði bæði í 600 kg stórsekkjum og 25 kg pokum.

Tvígildur blandaður köfnunarefnis- og fosfóráburður. Hentar þar sem þörf er á viðbótarskammti af fosfór en ekki þörf á kalíáburði s.s. með búfjáráburði, við uppgræðslu lands og aðra nýræktun. Inniheldur einnig kalk og brennistein.
Þrígildur blandaður áburður ætlaður fyrir tún sem fengið hafa hóflegan búfjáráburð. Hlutföll efna skila góðum skammti af köfnunarefni en tiltölulega litlu af fosfór og kalí. Hentar vel þar sem gert er ráð fyrir að fosfórstaða jarðvegs sé góð en talin hætta á brennisteinsskorti. Áburðurinn inniheldur lítilsháttar kalk, magnesíum, ríflega af brennisteini og bór.
Þrígildur blandaður áburður ætlaður fyrir tún sem fengið hafa takmarkaðan búfjáráburð. Þessi áburður gefur u.þ.b. tvöfalt meiri fosfór en NPK 25-2-6 og ívið meira kalí og á því betur við þar sem þörf er á ríflegum fósfórskammti. Auk N, P og K inniheldur hann kalk og brennistein.
Þetta er selenbættur þrígildur áburður sem einkum er framleiddur með beitilönd fyrir kálffullar kýr og kvígur í huga. Hann er þó ekki síður upplagður til þess að auka selen í heyi og því góður valkostur fyrir þá sem vilja tryggja selengjöf á einfaldan hátt að vetrinum. Þannig fær búféð líka selenið í lífrænum samböndum sem vitað er að nýtast betur en ólífrænt selen úr steinefnablöndum eða ,,lyfjum".
Þrígildur blandaður áburður ætlaður fyrir tún í þokkalegri rækt sem ekki hafa fengið búfjáráburð. Alhliða góður áburður sem ætti að uppfylla þarfir túngrasa og viðhalda forða næringarefna í jarðvegi. Inniheldur einnig kalk, magnesíum, brennistein og bór.
Þrígildur blandaður áburður með háu fosfórinnihaldi ætlaður fyrir grænfóður, korn og áburðarfrek tún. Sérstaklega hentugur á nýræktir án búfjáráburðar. Hér er bæði fosfór og kalí hærra en í öðrum áburðartegundum.
Þrígildur blandaður áburður ætlaður einkum fyrir matjurtir og garðrækt. Þetta er kalírík tegund sem hentar fyrir flestar tegundir matjurta, þ.m.t. kartöflur. Áburðurinn er klórsnauður en flestar tegundir matjurta eru viðkvæmar fyrir klór. Áburðurinn ætti einnig að nýtast vel í almennri garðrækt. Vel er séð fyrir þörfum flestra næringarefna því auk köfnunarefnis, fosfórs og kalís eru í honum kalk, magnesíum, brennisteinn, bór, mangan og sink. Hætta á snefilefnaskorti er því minnkuð með notkun hans.

Fínkornað mónóammoníumfosfat sem fellt er niður með útsæði í litlum skömmtum og er ætlað að flýta spírun byggs og kartaflna, einkum þar sem jarðvegur er kaldur.