Verðskrá er í krónum á tonn án virðisaukaskatts en 25,5% virðisaukaskattur leggst ofan á verð við útgáfu reiknings. Verðskrá getur breyst án fyrirvara vegna gengisþróunar.
Pöntunarafsláttur er 5% af pöntunum sem berast fram til 15. mars. Almenn greiðslukjör miðast við gjalddaga 1. hvers mánaðar eftir úttektarmánuð og eindaga 14 dögum síðar.
Staðgreiðsluafsláttur er 6% ef pantað er fyrir 15. mars, 4% fram til loka apríl og 2% í maí. Fyrsti gjalddagi staðgreiðslureikninga er 10. apríl og eindagi 14 dögum síðar en þó alltaf fyrir afhendingu áburðar.
Greiðsludreifing ef pantað er fyrir 15. mars. Í boði 7 jafnar vaxtalausar mánaðarlegar greiðslur með gjalddaga 1. hvers mánaðar frá maí til nóvember eða ein vaxtalaus greiðsla með gjalddaga 1. október 2012. Eindagi er 14 dögum síðar. Ganga þarf frá greiðslusamkomulagi fyrir afhendingu áburðar.
Greiðsluseðla þarf að greiða í banka. Sé greitt eftir eindaga reiknast dráttarvextir á vanskil frá gjalddaga.