Viðbótarmagn af köfnunarefnisáburði kom til Þorlákshafnar með Hauknum 9. júní s.l. Bæði er um að ræða OPTI-KAS (N27) og OPTI NS 27-0-0(4S). Með þessu er tryggt nægjanlegt magn af köfnunarefni fyrir seinni slátt. Til að bændur um allt land sitji við sama borð mun SS flytja eins og þarf köfnunarefnisáburð og annan áburð til þeirra landshluta sem vöntun er fyrir hendi. Með viðbótarsendingunni er jafnframt tryggt nægjanlegt magn af áburði fyrir bændur á svæðum á Suðurlandi sem illa hafa farið vegna öskufalls. Hafið samband við sölumenn eða beint á skrifstofu vegna pantana .






Inngangur Þótt bændur séu yfirleitt ekki að hugsa um áburðarkaup í ágúst og september þá er búreksturinn þess eðlis að langur aðdragandi eða ferill