Samkvæmt frétt Morgunblaðsins hefur norska bændahreyfingin og fleiri fyrirtæki í Noregi ákveðið að styðja við bakið á íslenskum bændum sem hafa orðið fyrir skakkaföllum vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Þeir hafa lagt 7 milljónir íslenskra króna í sjóð sem Bændasamtökum Íslands er ætlað að ráðstafa til þeirra bænda sem eiga í hlut.
Það eru norsku bændasamtökin Norges Bondelag, samvinnuhreyfingin Norske Felleskjöp, mjólkurvinnslufyrirtækið TINE, kjötfyrirtækið Nortura, tryggingafélagið Gjensidige, áburðarframleiðandinn Yara og bankinn Landkreditt sem hvert um sig leggur 1 milljón íslenskra króna í sjóðinn, samkvæmt fréttatilkynningu.
Sjá nánar á mbl.is