Hér á eftir fer stutt grein þar sem reynt er að auðvelda skilning á niðurstöðum jarðvegsefnagreininga og túlkun þeirra. Talin eru upp þau atriði sem efnamæld eru á Rannsóknastofu Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri. Efnið kemur úr ýmsum áttum en meginheimildir eru kennslubókin Áburðarfræði eftir Magnús Óskarsson og Matthías Eggertsson og grein eftir Þorstein Guðmundsson og Jóhannes Sigvaldason, kennara við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri. Grein þeirra félaga nefnist "Túlkun og hagnýting jarðvegsefnagreininga" og var birt í ritinu Ráðunautafundi 2000. Þar er m.a. að finna töflurnar sem hér fara á eftir.
Þú getur sótt þessa grein sem pdf skjal (339kb)