Nafnið Yara á rætur í norrænu sbr. orð eins og jarðargróður, jarðeign o.s.frv. Það er jafnframt nafn tólftu rúnarinnar í hinu germanska rúnaletri og táknar orustu. Ákveðið var að rita nafnið Yara í stað Jara til að auðvelda notkun þess í erlendum tungumálum enda starfar Yara í 120 löndum og er leiðandi í áburðarframleiðslu í heiminum.
Merki Yara er víkingaskipið sem fylgt hefur Norsk Hydro frá því stuttu eftir að fyrirtækið var stofnað og hóf áburðarframleiðslu árið 1905. Fyrsta starfsárið undir merki Yara verður því jafnframt það hundraðasta.
Allur áburður frá Yara er einkorna gæðaáburður þar sem lögð er áhersla á góð hráefni með lágu innihaldi kadmíums og annarra efna sem ekki næra plönturnar.