Þú ert hér : Forsíða :: Um okkur :: YARA


Yara er mjög virtur áburðarframleiðandi og sá eini sem starfar á heimsvísu. Einnig er Yara með umfangsmikla gas og efnaframleiðslu.

Í allri starfsemi Yara er lögð áhersla á að framleiðsla félagsins sé í sátt við umhverfið. Umhverfisstefna félagsins tekur mið af að öll framleiðsla hafi sem minnst áhrif á umhverfið og lífkeðjuna.

Yara leggur áherslu á að vinna með bændum við að þróa áburð sem uppfyllir ströngustu kröfur um gæði og umhverfisáhrif.

Það sem einkennir áburðinn frá Yara öðru fremur eru eftirfarandi atriði:

  • Einkorna áburður. Öll næringarefni saman í hverju korni til að tryggja jafna dreifingu en góð dreifing áburðar er forsenda þess að hann nýtist sem skyldi.
  • Rykmagn mjög lítið, sem kemur sér vel við dreifingu og meðhöndlun.
  • Auðuppleystur.
  • Mjög lágt þungmálmainnihald.

Þeim sem áhuga hafa á að kynna sér betur starfsemi YARA er bent á eftirfarandi vefslóðir:

Nokkur atriði úr sögu Yara:

1905:     Fyrstir til að framleiða Nitrat áburð( calsium nitrat) kallaður Noregssaltpétur

1928:     Hafin framleiðsla á NPK áburði í Porsgrunn.

1949:     Áburðarframleiðsla hafinn í Glomfirði.

1972:     Sala hafinn í Thailandi og síðar í öðrum Asíulöndum.

1977:     Sala hafinn í Suður-Ameríku.

1979:     Mikil fjölgun sölu- og framleiðslustaða innan sem utan Evrópu hefst. Orðinn eini alheimsframleiðandinn upp úr því.

2003:     Hydro Agri tekið út úr Norsk Hydro og sett á markað í kauphöllinni í Oslo.

2004:     Hydro Agri verður Yara með starfsemi víðs vegar um heiminn.




Sláturfélag Suðurlands svf. (www.ss.is ) l Fosshálsi 1, 110 Reykjavík s:575 6000 l yara@yara.is