Verðskrá Yara áburðar fyrir árið 2018/19  er komin út.  Verðskráin er með fyrirvara um prentvillur,  breytingar á gengi og pantað sé fyrir 15. janúar 2019.  Í boði eru hagstæðir greiðslusamningar eða  afslættir. Sé greitt fyrirfram fyrir 15. mars 2019 er 8% afsláttur og 5% ef greitt er fyrir 15. maí 2019.

Verðhækkun á áburði
Áburðarverðskrá Yara hækkar um 15% milli ára sem skýrist af hækkun á áburði í evrum á erlendum mörkuðum og gengisbreytingum. Köfnunarefnisáburður hækkar um 12%, NP áburður um 18% og NPK áburður um 15% fyrir utan eina tegund sem hækkar um 18%.

Hagstætt tilboð á  flutningi á áburði heim á hlað ef pantað er fyrir 15. janúar 2019 
1000 kr/tonn án vsk. fyrir 6 tonn og meira.

Fimm tegundir sem allar innihalda selen
Yara leggur áherslu á að bjóða bændum góða valkosti til að auka selen í heyi og á beitarlönd enda víða selenskortur. Heyefnaniðurstöður hjá bændum sem hafa borið á selenbættan Yara áburð staðfesta með óyggjandi hætti góða selenstöðu gróffóðursins.

Einkorna gæðaáburður
Allur Yara áburður er einkorna gæða áburður þar sem öll næringarefnin eru í hverju korni en góð dreifing og nýting næringarefna í áburði getur skipt sköpun varðandi fóðrun og heilsufar gripa. Einnig þarf að huga  sérstaklega að sýrustigi jarðvegs til að nýting áburðarefna sé hámörkuð og vekjum við athygli á Kalksaltpetri og Dolomit magnesíum-kalki sem stendur til boða á hagstæðu verði.

Yara áburður – Umhverfisvænn og vottaður
Með því að nota Yara einkorna áburð leggur þú þitt af mörkum til að draga úr kolefnislosun við framleiðslu búfjárafurða. 

Kornið fréttabréf 

Verðskrá

Skráðu þig á póstlista Yara og við sendum þér hagnýtar upplýsingar