YaraVita Brassitrel Pro (10 L)

12.177 kr.

Lýsing

YaraVita Brassitrel Pro er fljótandi áburður sem inniheldur nauðsynleg snefilefni og hentar sérstaklega vel fyrir grænmeti.

Þar sem áburðurinn er í vökvaformi er auðvelt að mæla, hella og blanda hann og hámarkar það dreifingu næringarefna.

Hreinleiki efnanna sem notuð eru í YaraVita vörurnar tryggir hámarks nýtingu og gæði uppskerunnar.

Stærð næringarefnanna í blöndunni leyfa fljótlegri upptöku og langvarandi áhrif.  Þetta minnkar þörfina fyrir endurtekna áburðardreifingu, sem sparar bæði tíma og peninga.

Auðvelt er að blanda YaraVita með illgresis- og sveppavarnarefnum, sem sparar bæði tíma og peninga.

Verðupplýsingar:
Verð kr/brúsa án vsk 7.561
Virðisaukaskattur kr/brúsa 1.815
Pakkningastærð 10 L brúsi

EFNAINNIHALD, %

Áburðartegund

N P K Ca Mg S B Cu Mn Mo Fe Zn Na Se

YaraVita Brassitrel Pro

4,5  5,8 4,6 3,9 4,6 0,3

Notkunarleiðbeiningar

Aspas

Aspas: 3 lítrar á hektara blandað í 200 lítra af vatni, borið tvisvar á með 10 til 14 daga millibili.

Bygg

Bygg: 3 lítrar á hektara blandað í 200 lítra af vatni, á hvaða tímapunkti sem er frá 2. laufstigi þar til spretta hefst.

Baunir

Baunir: 3 til 4 lítrar á hektara blandað í 200 lítra af vatni, borið á við 4.-6. laufstig.  Endurtakið eins og þörf er á með 10 til 14 daga millibili allt að mánuði fyrir uppskeru.
ATH notist ekki á meðan blómgun er.

Spergilkál

Spergilkál: 3 til 4 lítrar á hektara blandað í 200 lítra af vatni, eins snemma og hægt er við 4.-6. laufstig.  Endurtakið eftir þörfum með 10-14 daga millibili allt að mánuði fyrir uppskeru.

Rósakál

Rósakál: 3 til 4 lítrar á hektara blandað í 200 lítra af vatni, eins snemma og hægt er við 4.-6. laufstig.  Endurtakið eftir þörfum með 10-14 daga millibili allt að mánuði fyrir uppskeru.

Hvítkál

Hvítkál: 3 til 4 lítrar á hektara blandað í 200 lítra af vatni, eins snemma og hægt er við 4.-6. laufstig.  Endurtakið eftir þörfum með 10-14 daga millibili allt að mánuði fyrir uppskeru.

Gulrætur

Gulrætur: 3 lítrar á hektara blandað í 200 lítra af vatni.  Borið tvisvar á, þegar grösin eru um 15 cm á hæð, og aftur tveimur vikum síðar.

Blómkál

Blómkál: 3 til 4 lítrar á hektara blandað í 200 lítra af vatni, eins snemma og hægt er við 4.-6. laufstig.  Endurtakið eftir þörfum með 10-14 daga millibili allt að mánuði fyrir uppskeru.

Gulrófur

Gulrófur: 3 til 4 lítrar á hektara blandað í 200 lítra af vatni notast við 4.-6. laufstig.  Þegar skortur er á áburðarefnum endurtakið þá dreifingu með 10-14 daga millibili eftir þörfum.

Blaðlaukar

Blaðlaukar: 3 lítrar á hektara blandað í 200 lítra af vatni, borið á tveimur vikum eftir útplöntun, eða þegar plantan er orðin 15 cm á hæð, í þeim tilvikum þar sem sáð er beint út.  Þegar skortur er á áburðarefnum endurtakið þá dreifingu með 10-14 daga millibili, eftir þörfum.

Salat

Salat: 3 til 4 hektarar blandað í 200 lítra af vatni, borið á eins snemma og hægt er á vaxtartímabili plöntu frá 4.-6. laufstigi.  Endurtakið eins og þarf, með 10 til 14 daga millibili, fram að mánuði fyrir uppskeru.

Hörfræ

Hörfræ: 3 lítrar á hektara blandað í 200 lítra af vatni, þegar plönturnar eru 15 cm á hæð.  Þegar skortur er á áburðarefnum endurtakið þá dreifingu með 10-14 daga millibili eftir þörfum.

Maís

Maís: 3 lítrar á hektara blandað í 200 lítra af vatni, við 4. til 8. laufstig.

Hafrar

Hafrar: 3 lítrar á hektara blandað í 200 lítra af vatni, á hvaða tímapunkti sem er frá 2. laufstigi þar til spírun er að hefjast.

Olíurepja

Olíurepja: 3 til 4 lítrar á hektara blandað í 50 til 200 lítra af vatni.  Fyrsta áburðargjöf við 4.-9. laufstig og svo aftur þegar stilkurinn fer að auka vöxt sinn í upphafi blómgunar.  Endurtakið með 10 til 14 daga millibili innan þessara vaxtartímabila eftir þörfum.
Berið svo aftur á, 3 lítra á hektara, þegar blómin hafa misst öll blöð.

Laukar

Laukar: 3 lítrar á hektara blandað í 200 lítra af vatni, borið á um leið og það er nægileg laufmyndun, og endurtakið aftur 2 vikum síðar.

Baunir

Baunir: 3 til 4 lítrar á hektara blandað í 200 lítra af vatni, eins snemma og hægt við 4. til 6. laufstig.  Endurtakið eftir þörfum með 10 til 14 daga millibili fram að mánuði fyrir uppskeru.
ATH. notist ekki á meðan blómgun er.

Kartöflur

Kartöflur: 3 lítrar á hektara blandað í 200 lítra af vatni, borið á viku eftir að öll grös hafa komið upp og aftur 10 til 14 dögum síðar.

Sykurrófur

Sykurrófur: 3 lítrar á hektara blandað í 200 lítra af vatni, frá 4.-6. laufstigi.  Endurtaka má áburðargjöf eftir þörfum með 10 til 14 daga millibili.

Hveiti

Hveiti: 3 lítrar á hektara blandað í 200 lítra af vatni, borið á hvenær sem er frá 2. vaxtarstigi þar til spírun hefst.

Skráðu þig á póstlista Yara og við sendum þér hagnýtar upplýsingar