Sláturfélag Suðurlands tók, nú í haust, hátt í 100 heysýni víðsvegar af landinu, en þó mest á suður- og vesturlandi. Veðurfar var hagstætt og hófst sláttur með fyrra móti, í lok maí eða byrjun júní. Uppskera var víðast hvar mjög mikil og slógu margir bændur þrisvar sinnum, jafnvel fjórum sinnum. Gæði uppskeru var nokkuð góð. Ef skoðaðar eru meðaltölur fyrir fyrri slátt þá er orkan 0,87 FEm og próteinið 152.

Mynd 1: Viðmið fyrir prótein er 140-180, appelsínugula línan sýnir neðri mörk og gráa línan efri mörk. X-ásinn er þurrefnisprósenta. Bláu punktarnir eru öll heysýni úr fyrra slætti. Ekki er gott að prótein sé mikið hærra því þá fer aukin orka í niðurbrot á próteininu. Hinir punktarnir eru keppendur í „Gróffóðurkeppni Yara“. Ef próteinið fer undir viðmiðunarmörk ætti að skoða sláttutíma og köfnunarefnisáburðargjöf.

Steinefnainnihaldið er nokkuð gott í heysýnunum. Ef meðaltölur heysýna eru skoðaðar fyrir fyrri slátt þá er fosfór (P), magnesíum (Mg), kalí (K), brennisteinn (S) á pari eða yfir viðmiðunargildum.

Mynd 2: Viðmið fyrir fosfór (P) er 3-4, appelsínugula línan sýnir neðri mörk og gráa línan efri mörk. X-ásinn er þurrefnisprósenta. Bláu punktarnir eru öll heysýni úr fyrri slætti. Hinir punktarnir eru keppendur í Gróffóðurkeppni Yara. Ef fosfór er undir viðmiðunarmörkum þá er mikilvægt að skoða hlutina í samhengi, hve mikinn fosfór hefur verið borinn á og hver kalsíumstaðan er. Mikilvægt er að sýrustigið sé rétt, því fosfórinn binst auðveldlega jarðvegi.

Mynd 3: Viðmið fyrir kalí (K) er 18-28, appelsínugula línan sýnir neðri mörk og gráa línan efri mörk. X-ásinn er þurrefnisprósenta. Bláu punktarnir eru öll heysýni úr fyrri slætti. Hinir punktarnir eru keppendur í „Gróffóðurkeppni Yara“. Ef kalí er undir viðmiðunarmörkum er rétt að skoða sögu túnsins, með tilliti til hvort túnið hafi fengið skít eða ekki, skoða áburðargjöfina og taka skítasýni. Því miður eru alltof mörg sýni undir viðmiðunarmörkum og fara jafnvel langt fyrir neðan þau.

Mynd 4: Viðmið fyrir brennistein (S) er 2-4, appelsínugula línan sýnir neðri mörk og gráa línan efri mörk. X-ásinn er þurrefnisprósenta. Bláu punktarnir eru öll heysýni úr fyrri slætti. Hinir punktarnir eru keppendur í „Gróffóðurkeppni Yara“. Ef brennisteinn fer undir viðmiðunarmörk er vert að skoða áburðargjöfina og velja áburð sem inniheldur brennistein. Flestar áburðartegundir sem Sláturfélag Suðurlands bíður upp eru ríkar af bór, má þá sérstaklega nefna köfnunarefnisáburðinn Opti-NS https://www.yara.is/vara/opti-ns-27-0-0-4s/ .

Mynd 4: Viðmið fyrir brennistein (S) er 2-4, appelsínugula línan sýnir neðri mörk og gráa línan efri mörk. X-ásinn er þurrefnisprósenta. Bláu punktarnir eru öll heysýni úr fyrri slætti. Hinir punktarnir eru keppendur í „Gróffóðurkeppni Yara“. Ef brennisteinn fer undir viðmiðunarmörk er vert að skoða áburðargjöfina og velja áburð sem inniheldur brennistein. Flestar áburðartegundir sem Sláturfélag Suðurlands bíður upp eru ríkar af bór, má þá sérstaklega nefna köfnunarefnisáburðinn Opti-NS.

Kalsíum (Ca) og natríum (Na) eru hins vegar undir viðmiðunargildum. Það er því mjög mikilvægt að bændur hugi vel að kölkun túna. Góðir kalkgjafar sem Sláturfélag Suðurlands er að selja eru kalksaltpétur og Mg-kalk (kornað og 0-0,2 mm).  Við erum einnig með umboðssölu fyrir skeljasand frá Björgun ehf í Reykjavík.

Mynd 5: Viðmið fyrir kalsíum (Ca) 4-6, appelsínugula línan sýnir neðri mörk og gráa línan efri mörk. X-ásinn er þurrefnisprósenta. Bláu punktarnir eru öll heysýni úr fyrri slætti. Hinir punktarnir eru keppendur í „Gróffóðurkeppni Yara“. Ef kalsíum er undir viðmiðunarmörkum þá er nauðsynlegt að kalka.

Mikilvægt er að sýristig sé á bilinu 5,8-6,5 til að sáðgresi þrífist sem best.  Nytjajurtir af krossblóma ætt, s.s. fóðurkál, fóðurnæpur og smári þurfa fremur hátt sýrustig.  Bygg er mjög viðkvæmt fyrir súrum jarðvegi og því enn mikilvægara að hugsa að réttu sýrustigi ef rækta á þessar nytjajurtir.

Þegar sýrustigið er „rétt“ þá eru mikilvæg næringarefni aðgengilegri fyrir plönturnar og áburður nýtist því mun betur, sem eykur gæði og magn uppskeru. Jarðvegsbyggingin verður betri og því eykst hæfni jarðvegs á tilfærslu lofts og vatns.

Almennt eru snefilefnin góð í heyjum. Selen er nokkuð gott, en bændur eru að sjá gríðarlega breytingu á búfé eftir að þeir byrjuðu að nota selenbættan áburð. Hjá kúnum hefur kálfadauði minnkað verulega og er ekki lengur vandamál eins og hann var fyrir nokkrum árum. Sláturfélag Suðurlands er að selja fimm áburðartegundir sem eru selenbættar.  Smellið á áburðartegundirnar til að fá frekari upplýsingar:

NP 26-4+Se

NP 25-2+Se

NPK 27-3-3+Se

NPK 23-3-8+Se

NPK 22-6-6+Se

Skráðu þig á póstlista Yara og við sendum þér hagnýtar upplýsingar