Yara tækni

Húðunin

Yara tækni 1

Húðun er mikilvæg til að viðhalda gæði áburðarins og vernda hann gegn raka upptöku og skemmdum í meðferð.  Tæknisetur Yara hefur þróað hagkvæma húðun sem:

– Minnkar vatnsupptöku í röku andrúmslofti
– Minnkar líkur á kögglun
– Minnkar rykmyndun

Þar að auki er húðin stundum í ákveðnum lit til að aðskilja vörur.  Þau efni sem eru notuð í húðun kornanna eru skaðlaus fyrir plöntur, jarðveg eða menn.

 

Koma í veg fyrir kögglun

Áburður og salt vörur eiga það gjarnan til að kögglast í flutningi og geymslu.  Til að koma í veg fyrir kögglun fara áburðarkorn í gegnum mismunandi efni sem innihalda iðulega yfirborðsvirkt efni og fíngert óvirkt púður.  Yfirborðsvirka efnið kemur í veg fyrir að kristallamyndun tengi kornin saman, og púðrið minnkar snertingu yfirborða.

Koma í veg fyrir rykmyndun

Magn ryks sem áburður gefur frá sér stjórnast af nokkrum eðlisfræðilegum þáttum eins og brotaþoli og lögun, meðferð og húðun.

Koma í veg fyrir hitasveiflur

Undir eðlilegum aðstæðum er allur ammóníum nítrat áburður stöðugur.  Þegar hann er geymdur í beinu sólarljósi þá geta orðið hitasveiflur.  Það gerir það að verkum að áburðarkornin bólgna og niðurbrot verður.

ammóníum nítrat niðurbrot

Niðurbrotið gerist hraðar ef varan inniheldur raka og/eða er ekki í jafnvægi.

Ammóníum nítrat kemur fyrir í mismunandi kristalla formum; þegar það breytist úr einu í annað þá breytist einnig rúmmál þess.  Breyting við 32°C leiðir til breytingar á þéttleika og getur valdið því að varan brotnar niður.

AN 33,5 og nokkrar aðrar vörur háar í ammóníum nítrati innihalda efni til að lágmarka áhrif hitabreytinga.

Hinsvegar geta þessi efni byrjað að brotna niður þegar áburður er geymdur í langan tíma ið óhentugar aðstæður.  Fylgist ávallt með umhverfishita og raka, sérstaklega þar sem áburður er geymdur í miklu magni.

Skráðu þig á póstlista Yara og við sendum þér hagnýtar upplýsingar