Nú í vor voru lagðir út 36 sýningarreitir á Hvolsvelli á vegum Búvörudeildar SS. Markmið reitanna er að geta sýnt gestum og gangandi áhrif mismunandi áburðarskammta á korn og hafra.

Sýrustig reitanna sem sáð var í er pH 6,15. Mikilvægt er að sýrustigið sé á bilinu pH 6-6,5 svo að upptaka næringarefna verði sem best.

Sáð var byggi í 30 reiti en notuð voru 2 ja raða yrkin Kría, Anneli og Filippa og 6 raða yrkin Smyrill og Aukusti. Einnig var sáð í 6 reiti af höfrum með yrkinu Niklas. Allir reitirnir fengu 70 kg/ha af köfnunarefni en mismunandi magn af fosfór og kalí. Allur áburður sem var notaður er frá Yara.

Reitirnir eru vel merktir og er gestum og gangandi velkomið að ganga um svæðið.

Skráðu þig á póstlista Yara og við sendum þér hagnýtar upplýsingar