Blöð – Yara Áburðarhnífur

4.190 kr.

Flokkur:

Lýsing

Yara áburðarhnífurinn auðveldar þér að opna áburðarsekki yfir áburðardreifaranum.  Hann er hannaður til að auðvelda þér starfið og auka öryggi.

Hnífsblaðið missir bit við notkun og getur eftir mikla notkun við opnun áburðarsekkja orðið bitlaust. Hægt er að brýna hnífsblaðið. Ef það er orðið skemmt og ekki hægt að brína það lengur þá er hægt að panta nýtt hnífsblað fyrir Yara stórpokahnífinn þinn. Ásamt hnífsblaðinu fylgja nauðsynlegar skrúfur/rær sem þarf að nota.

Verð án vsk.: 4.190 kr
Verð með vsk.: 5.196 kr

 

Þegar hnífurinn er notaður er mikilvægt að tryggja:

  • Að notandi standi á jöfnu og stöðugu undirlagi.
  • Að notandi sé aldrei staðsettur undir áburðarsekkinum.
  • Að ávalt sé notast við báðar hendur þegar nota á hnífinn.
  • Að hnífurinn sé dreginn alla leið út þar til smellur heyrist áður en hann er notaður.
  • Að ávalt sé gengið frá hnífnum eftir notkun og að hann sé dreginn saman þar til smellur heyrist.
  • Að ávalt sé fylgt almennum öryggisreglum í meðhöndlun áburðar og vinnuvéla.
  • Að hnífurinn sé aðeins notaður í þeim tilgangi sem hann var hannaður fyrir.
  • Hafðu samband við Sláturfélag Suðurlands ef einhver galli finnst að áburðarhnífnum.

Geymið hnífinn á þurrum og öruggum stað.  Geymist þar sem börn ná ekki til.  Hnífurinn skal ávalt vera lokaður þegar hann er ekki í notkun.

Skráðu þig á póstlista Yara og við sendum þér hagnýtar upplýsingar