yara_fsidaVerðskrá Yara áburðar fyrir árið 2017/18  er komin út.  Verðskráin er með fyrirvara um breytingar á gengi og pantað sé fyrir 15. janúar 2018.  Í boði eru hagstæðir greiðslusamningar eða  afslættir. Sé greitt fyrirfram fyrir 15. mars 2018 er 8% afsláttur og 5% ef greitt er fyrir 15. maí 2018.

Verðhækkun á áburði
Áburðarverðskrá Yara hækkar nú um 14% milli ára sem skýrist fyrst og fremst af hækkun á áburði í evrum á erlendum mörkuðum. Áburðarverðskrá Yara lækkaði um 25% í fyrra og 12% árið áður. 

Staðgreiðsluverð  á OPTI-KAS er nú 50.100,- kr/tonn án vsk en var á síðasta sölutímabili 43.950,- kr/tonn og hækkar því um 6.150,- kr/tonn án vsk.     Til að mynda hækkar NPK 24-4-7 um 7.750,- kr/tonn en staðgreiðsluverð er nú 63.400,- kr/tonn án vsk en var í fyrra 55.650,- kr/tonn.

Hagstætt tilboð á  flutningi á áburði heim á hlað ef pantað er fyrir 15. janúar 2018
1000 kr/tonn án vsk. fyrir 6 tonn og meira.

Fimm tegundir sem allar innihalda selen
Yara leggur áherslu á að bjóða bændum góða valkosti til að auka selen í heyi og á beitarlönd enda víða selenskortur. Við vöruvalið bætist nú NP 25-2 Se og NPK 23-3-8 Se en fyrir voru NP 26-4 Se, NPK 27-3-3 Se og NPK 22-6-6 Se

Heyefnaniðurstöður hjá bændum sem hafa borið á selenbættan Yara áburð staðfesta með óyggjandi hætti góða selenstöðu gróffóðursins.

Einkorna gæðaáburður
Allur Yara áburður er einkorna gæða áburður þar sem öll næringarefnin eru í hverju korni en góð dreifing og nýting næringarefna í áburði getur skipt sköpun varðandi fóðrun og heilsufar gripa. Einnig þarf að huga  sérstaklega að sýrustigi jarðvegs til að nýting áburðarefna sé hámörkuð og vekjum við athygli á Kalksaltpetri og Dolomit magnesíum-kalki sem stendur til boða á hagstæðu verði.

Yara áburður – Umhverfisvænn og vottaður
Með því að nota Yara einkorna áburð leggur þú þitt af mörkum til að draga úr kolefnislosun við framleiðslu búfjárafurða. Yara ábyrgist minna en 3,6 kg af koldioxið CO
2 losun á hvert framleitt kg af köfnunarefni (N) út í andrúmsloftið. Yara er með gæðavottun frá DNV (Det Norske Veritas). Við framleiðslu á áburði hjá öðrum framleiðendum er losunin um 8 kg af koldioxið CO2 á kg (N).

Kornið fréttabréf 

Verðskrá

Skráðu þig á póstlista Yara og við sendum þér hagnýtar upplýsingar