Verðskrá Yara áburðar fyrir árið 2019/20  er komin út.  Verðskráin er með fyrirvara um prentvillur og breytingar á gengi. Í boði eru hagstæðir greiðslusamningar eða  afslættir. Sé greitt fyrir fram fyrir 15. mars 2020 er 8% afsláttur og 5% ef greitt er fyrir 15. maí 2020.

Verðlækkun á áburði
Áburðarverðskrá Yara lækkar umtalsvert milli ára sem skýrist fyrst og fremst af lækkun á áburði á erlendum mörkuðum. Köfnunarefnisáburður lækkar um 7%, NP áburður um 14 – 15% og flestar NPK áburðartegundir lækka um 14%.

Hagstætt tilboð á  flutningi á áburði heim á hlað ef pantað er fyrir 15. janúar 2020
1000 kr/tonn án vsk. fyrir 6 tonn og meira.

Sex tegundir sem allar innihalda selen
Við bætum við einni nýrri tegund, NPK 20-5-10. Tegundin hentar sérstaklega þar sem þörf er á miklum fosfór. Yara leggur áherslu á að bjóða bændum góða valkosti til að auka selen í heyi og á beitarlönd enda víða selenskortur. Heyefnaniðurstöður hjá bændum sem hafa borið á selenbættan Yara áburð staðfesta með óyggjandi hætti góða selenstöðu gróffóðursins.

Einkorna gæðaáburður
Allur Yara áburður er einkorna gæða áburður þar sem öll næringarefnin eru í hverju korni en góð dreifing og nýting næringarefna í áburði getur skipt sköpun varðandi fóðrun og heilsufar gripa

Yara áburður – Umhverfisvænn og vottaður
Með því að nota Yara einkorna áburð leggur þú þitt af mörkum til að draga úr kolefnislosun við framleiðslu búfjárafurða. 

Mikilvægi kölkunar – Dolomit Mg kalk í lausu
Sýrustig jarðvegs er afar lágt hér á landi og því mikil þörf víða að ná að hækka pH gildi í jarðvegi.  Huga  þarf sérstaklega að sýrustigi jarðvegs til að nýting áburðarefna sé hámörkuð og vekjum við athygli á Kalksaltpetri og Dolomit magnesíum-kalki sem stendur til boða á hagstæðu verði. Við bjóðum nú einnig Dolomit Mg-kalk í lausu þar sem við teljum þörfina á kölkun afar ríka hér á landi.  Mikilvægar upplýsingar um kölkun er að finna í fréttablaðinu Korninu sjá hér að neðan.

Kornið fréttabréf 

Verðskrá

Skráðu þig á póstlista Yara og við sendum þér hagnýtar upplýsingar