Við gefum að þessu sinni út verðskrá Yara áburðar sem gildir til loka október 2020. Um er að ræða takmarkað magn af áburði. Verðskráin er með fyrirvara um prentvillur og getur breyst án fyrirvara. Við bjóðum Dolomit Mg kalki í lausu en við teljum haustið góðan tíma til að kalka.

Verðhækkun á áburði vegna gengisveikingar
Gengi krónunnar hefur veikst verulega á árinu og veldur það hækkun á áburði. Talsverð óvissa ríkir vegna þeirra neikvæðu áhrifa sem kórónaveiran hefur haft. Við viljum því bjóða takmarkað magn af áburði og Dolomit Mg kalk í lausu í haust. Einungis er í boði eitt verð, sem er um 8% hærra en okkar lægsta verð s.l. vor, og greiðslum sé lokið fyrir 15. apríl 2021.

Hagstætt tilboð á  flutningi á áburði heim á hlað ef pantað er fyrir 31. október 2020
1000 kr/tonn án vsk. fyrir 6 tonn og meira. Einnig í boði hagstæður flutningur á kalki ef pantað er 25 tonn eða meira fyrir 31. október 2020.

Fimm tegundir sem allar innihalda selen
Í vor bættist við ný tegund, NPK 20-5-10. Tegundin hentar sérstaklega þar sem þörf er á miklum fosfór. Yara leggur áherslu á að bjóða bændum góða valkosti til að auka selen í heyi og á beitarlönd enda víða selenskortur. Heyefnaniðurstöður hjá bændum sem hafa borið á selenbættan Yara áburð staðfesta með óyggjandi hætti góða selenstöðu gróffóðursins.

Einkorna gæðaáburður
Allur Yara áburður er einkorna gæða áburður þar sem öll næringarefnin eru í hverju korni en góð dreifing og nýting næringarefna í áburði getur skipt sköpun varðandi fóðrun og heilsufar gripa

Yara áburður – Umhverfisvænn og vottaður
Með því að nota Yara einkorna áburð leggur þú þitt af mörkum til að draga úr kolefnislosun við framleiðslu búfjárafurða.

Nú er rétti tíminn til að kalka! – Dolomit Mg kalk í lausu

Sýrustig jarðvegs er afar lágt hér á landi og því mikil þörf að hækka pH gildi jarðvegs. Huga  þarf sérstaklega að sýrustigi jarðvegs til að nýting áburðarefna sé hámörkuð og vekjum við athygli á Kalksaltpetri og Dolomit magnesíum-kalki sem stendur til boða á hagstæðu verði.

Við bjóðum nú einnig Dolomit Mg-kalk í lausu til afgreiðslu í lok september þar sem við teljum þörfina á kölkun afar ríka hér á landi.  Mikilvægar upplýsingar um kölkun er að finna hér.

Við bjóðum upp á faglega þjónustu. Tökum jarðvegssýni og túlkum niðurstöður.  Hafið samband við sölumenn og fáið frekari upplýsingar. Verktakar á okkur vegum sjá um kalkdreifinguna með hagkvæmum hætti ef óskað er.

Kornið fréttabréf 

Verðskrá

 

Skráðu þig á póstlista Yara og við sendum þér hagnýtar upplýsingar