Kölkun hefur mikil og jákvæð áhrif á áburðarnýtingu. Með því að kalka og viðhalda réttu sýrustigi í jarðvegi næst að hámarka aðgengi og upptöku næringarefna. Kölkun er því afar mikilvæg.
Dolomit Mg-kalk er hagkvæmur kalkgjafi. Gefinn er 3500 kr/t afsláttur til þeirra sem kaupa Yara áburð.
Við tökum jarðvegssýni og túlkum niðurstöður. Sölufulltrúar veita allar frekari upplýsingar.
- Kölkun eykur aðgengi plantna að næringarefnum í jarðvegi og stuðlar að bættri frjósemi.
- Kölkun eykur endingu sáðgresis í túnum sem stuðlar að aukinni uppskeru og lystugra fóðri.
- Kölkun stuðlar að bættri nýtingu næringarefna úr áburði.
Hvert er æskilegt sýrustig?
Til að hámarka aðgengi og upptöku næringarefna í jarðvegi er ákjósanlegast að sýrustigið sé á bilinu
pH 6,0 – 6,5.
Nytjaplöntur gera mismunandi kröfur til sýrustigs. Bygg, smári og nytjajurtir af krossblómaætt þola t.d. illa súra jörð.

Því vill SS leggja sitt af mörkum til að auka aðgengi bænda að Dolomit Mg-kalki.
Kalkið verður í boði frá 7 höfnum í vor en við bætum nú Þórshöfn við.
Við leggjum endurgjaldslaust til 5 Bredal kalkdreifara. Traustir verktakar dreifa kalkinu á hagkvæman hátt.
