Við birtum nú verðskrá fyrir árið 2023. Verðskráin er með fyrirvara um prentvillur og getur breyst án fyrirvara.

Verðbreyting

Verðbreyting frá apríl verðskrá 2022 eru á bilinu 0 – 7,4%. Köfnunarefnisáburður hækkar mest eða rúmlega 7%. Algengar NP og NPK tegundir eru að hækka á bilinu 0 – 5%.

Garðáburður NPK 12-4-18 hækkar um 0,2% en hann er nú í boði á 147.200 kr/t en var 146.900 kr/t. NPK 27-3-3 Se hækkar um 2,7%, verð nú 136.700 kr/t en var 134.300 kr/t. OPTI-KAS hækkar um 7,4% og verð nú 128.600 kr/t en var 119.700 kr/t. Allar fjárhæðir án virðisaukaskatts.
Nánari upplýsingar í verðskrá.

Greiðslukjör

Í boði er eitt verð. Gjalddagi áburðarkaupa er 15. apríl 2023. Einnig í boði greiðsludreifing fram til 15. október 2023, vaxtareiknuð frá gjalddaga 15. apríl fram til greiðsludags með 6% ársvöxtum sem jafngildir 3% hærra verði sé greitt 15. október 2023 í stað 15. apríl.

Frí heimkeyrsla á áburði ef pantað er fyrir 10. janúar 2023.

Flutningstilboð á áburði er 2.000 kr/tonn án vsk. ef pantað er fyrir 6 tonn eða meira. Kostnaður við flutning á áburði minna en 6 tonn miðast við verðskrá flutningsaðila. Flutningstilboð á kalki 2.000 kr/tonn ef pantað er 20 tonn eða meira.

Fimm tegundir sem allar innihalda selen

Yara leggur áherslu á að bjóða bændum góða valkosti til að auka selen í heyi og á beitarlönd enda víða selenskortur. Heyefnaniðurstöður hjá bændum sem hafa borið á selenbættan Yara áburð staðfesta með óyggjandi hætti góða selenstöðu gróffóðursins.

Einkorna gæðaáburður

Allur Yara áburður er einkorna gæða áburður þar sem öll næringarefnin eru í hverju korni en góð dreifing og nýting næringarefna í áburði getur skipt sköpun varðandi fóðrun og heilsufar gripa

Yara áburður – Umhverfisvænn og vottaður

Með því að nota Yara einkorna áburð leggur þú þitt af mörkum til að draga úr kolefnislosun við framleiðslu búfjárafurða.

Kölkun, nýting búfjáráburðar og góð bústjórn

Mikilvægt er að gera áburðaráætlun byggða á heysýnum, jarðvegssýnum og skítasýnum, jafnframt því sem metið er hverju það skilaði sem borið var á í fyrra.

Hagkvæmt er að nýta allan búfjáráburð sem aðgangur er að til að draga úr notkun á tilbúnum áburði. Kölkun er mikilvæg til að áburður nýtist sem best. Dolomit Mg-kalkið frá Franzefoss Minerals hefur reynst bændum afar vel.

Áburðardreifingin skiptir miklu máli, sé nákvæm og borin á einkorna gæða áburður  þannig að öll næringarefnin skili sér með skilvirkum hætti.

Starfsmenn SS veita fagleg þjónustu við túlkun niðurstaðna úr sýnatökum, gerð áburðaráætlana og val á Yara áburði sem hentar hverju sinni.

Skráðu þig á póstlista Yara og við sendum þér hagnýtar upplýsingar