Yara birti verðskrá 12. desember s.l. Frá þeim tíma hefur köfnunarefnisáburður lækkað á erlendum mörkuðum. Verð á gasi til köfnunarefnisframleiðslu hefur lækkað, m.a. vegna hlýinda í Evrópu í desember og janúar.

Við viljum koma ávinningi af lækkun köfnunarefnis til bænda og gefum út nýja verðskrá á Yara áburði. Við aukna eftirspurn á áburði á komandi mánuðum gæti verð á áburði tekið að hækka aftur eins og reynslan hefur sýnt. Af þeim sökum munum við fljótlega loka endanlega því áburðarmagni sem við tökum til landsins í vor. Við hvetjum því bændur sem hyggjast kaupa Yara áburð að ganga frá pöntun sem fyrst.

Umtalsverð verðlækkun

Verðlækkun frá verðskrá 12. desember er allt að 9%. Mest er lækkun á hreinum köfnunarefnistegundum eins og OPTI-KAS, OPTI-NS og á NPK 25-2-6. Aðrar algengar þrígildar tegundir eru að lækka allt að 6%. Það sem vegur á móti frekari verðlækkun er mikil gengisveiking á undanförnum vikum.

OPTI-KAS lækkar um 11.100 kr/t. Nýtt verð 117.500 kr/t án vsk. var 128.600 kr/t.

OPTI-NS lækkar um 10.600 kr/t. Nýtt verð 120.200 kr/t án vsk. var 130.800 kr/t.

NPK 25-2-6 lækkar um 10.200 kr/t. Nýtt verð 120.900 kr/t án vsk. Tegundin nýtist vel þar sem tún eru í þokkalegri rækt eða með hóflegum búfjáráburði og á milli slátta og getur því verið góður valkostur.

Frí heimkeyrsla á áburði framlengd til 15. febrúar

Til að koma til móts við þá bændur sem dregið hafa að ljúka áburðarpöntun þar sem verð frá öðrum áburðarsölum hefur ekki legið fyrir þá framlengjum við tilboði um fría heimkeyrslu fram til 15. febrúar n.k.

Þeir fjölmörgu bændur sem nú þegar hafa pantað Yara áburð njóta einnig þessarar verðlækkana sem og bændur sem keyptu birgðir í haust.

SS var stofnað árið 1907 og er samvinnufélag búvöruframleiðanda. Það er markmið SS að selja bændum hágæða einkorna áburð á eins hagstæðu verði og mögulegt er. Með því stuðlum við að samkeppnishæfi innlendrar búvöruframleiðslu og úrvals afurðum neytendum til hagsbóta.

Nánari upplýsingar um:

Skráðu þig á póstlista Yara og við sendum þér hagnýtar upplýsingar